Subscribe via RSS Feed

Sagan mín

Velkomin/n á síðuna mína :)

Ég heiti Edda Borg og er 45 ára gömul tónlistarkona og fjögurra barna móðir. Ég fór að nota næringarvörur Herbalife haustið 1999.  Ég fann strax mikinn mun á úthaldi og orkan varð jafnari yfir daginn. Ég hætti að leggja mig seinnipartinn og fór fljótlega að vakna á undan vekjaraklukkunni á morgnana. Ég losaði mig við 5-6 kíló (ég sem hélt að ég þyrfti ekkert að léttast:)) og hef haldið þeim af síðan. Mér finnst minni mitt vera betra og hugsunin skýrari.

Ég starfa sem skólastjóri Tónskóla Eddu Borg  og sem sjálfstæður Herbalife Lífsstílsleiðbeinandi í hlutastarfi. Ég hef mjög gaman af því að hjálpa fólki að ná tökum á þyngdinni og vísa þeim í áttina að betri lífsstíl. Ef þú hefur áhuga á að koma í frítt lífsstílsmat eða bara fræðast um heilbrigðan lífsstíl, hafðu þá samband.

 

Kveðja,

Edda Borg

Share